Ég keypti mér einmitt mánaðargamla muffins í 10-11 í gær, komst að því að hún væri löngu útrunnin þegar ég var búin að opna hana og sá einhvern blett á henni, þá var þetta myglublettur! Og eldhúsið lyktaði eins og ég veit ekki hvað í langan tíma eftir þetta þó ég lokaði muffinsina vandlega inni í poka til að fara og fá endurgreitt! Getur fólkið í búðunum ekki fylgst með vörunum sínum? Frekar böggandi að langa virkilega í eitthvað og sjá svo að það er myglað þegar maður er kominn heim til sín.