Það er ný hljómsveit að ryðja sér rúms þessa dagana. RVK.spirits. Hressandi rokk með snert af viðhorfsvandamáli. Meðlimir eiga talsverða sögu í spilamennsku meðal annars með Dr. Gunna, Spitsign og Vígspá. Þeir munu troða upp á kosningaskrifstofu Baldurs Ágústssonar ásamt Dáðadrengjum fimmtudagskvöldið 24. júní! Svo er þér boðið í “frumfluttningateiti” laugardagskvöldið næstkomandi! Sjáumst!