Allir kettir sem hafa hár fara úr hárum, Norskir kettir eru hálfsíðhærðir en persar eru síðhærðir, norskir kettir eru aðallega með makka á hálsinum og síð hár aftaná á fótunum, sem eru kallaðar buxur, þeir eru hinsvegar með mjög grófan feld og þurfa stundum litla feldhirðu, meðan persar eru loðnir á öllum líkamanum og eru þessvegna feldmeiri og flækjast meira. En öllum hálf- og síðhærðum köttum þarf að greiða til að hárin flækjist ekki eða þeir fara í hnúta.