Jæja kæru hálsar, þá er kallinn búinn að fá plakötin úr prentun og þá er komið að því að klína þessu upp útum allar trissur alveg eins og tröllum sæmir! Eins og svo oft áður, þá er alveg ómetanleg sú aðstoð sem mér hefur borist frá fólki í gegnum tíðina sem er til í að gera mikið til að halda senunni gangandi, vinna óeigingjarnt starf og hjálpa til með því m.a. að hengja upp plaköt í sínu hverfi, skólum, verslunum, sjoppum og svoleiðis. Fólk í þessari underground metal senu veit vel að góð...