Mér finnst það lágmark að ef menn eru að tala um að maður eða kennari sé sérstakur að þá sé hægt að rökstyðja það eða sleppa því. Því miður fannst mér þetta engin rök gagnvart Jóni. Ég held að Auðunn hafi ekki verið að svindla, menn geta gert mistök, hvort sem það er hinn almenni kylfingur eða kennari. Auðunn er mannlegur eins og við hin. Hvað varð til þess valdandi að hann mætti ekki á teig 3 keppnisdag þá er hann búinn að útskýra það. Þannig að það er óþarfi að núa honum því um nasir.