Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

spiros
spiros Notandi síðan fyrir 20 árum, 3 mánuðum 22 stig

Re: Hnefaleikakeppni hjá HFH næsta föstudag

í Box fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Kæra hnefaleikaáhugafólk. Ágústa Hera heiti ég og er formaður Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar. Mig langar til að svara þeim skrifum sem búin eru að vera um okkar félag inn á Huga. Ég vil þakka fyrir hrósið með frábært mót. Allavega erum við mjög ánægð með þetta og viljum trúa að vel hafi til tekist. Það var rosalega gaman að sjá og upplifa stemmninguna sem myndaðist á svæðinu hjá okkur. Þetta var bara alvöru íþróttamót. Vegna breytinga hjá FH er ekki alveg ljóst með aðstöðuna eins og er en...

Re: Hnefaleikakeppni hjá HFH næsta föstudag

í Box fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hey takk fyrir hrósið! :) Já við vorum ofboðslega ánægð með þetta allt saman, allt gekk mjög vel. Við förum örugglega í aðra jafn flotta eða flottari aðstöðu ef af þessu verður…

Re: Hnefaleikakeppni hjá HFH næsta föstudag

í Box fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Takk fyrir að láta vita með Sæþór, verður allt saman rétt í kvöld þó ég nái ekki að laga heimasíðuna strax. Sorry Sæþór!! Það er náttúrulega takmarkaður sætafjöldi og ég er nokkuð viss um að það verður pakkfullt í kvöld og miiiiiiiikil stemmning :) Sjáumst vonandi!

Re: Hnefaleikakeppni hjá HFH næsta föstudag

í Box fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Rétt hjá þér, við erum að hengja upp A4 auglýsingar hér og þar en það kostar víst peninga að auglýsa t.d. í útvarpi. Það verður samt örugglega góð mæting þar sem flestir sem æfa box vita af þessu. Endilega látið þetta spyrjast út ;)

Re: Hvað þarf maður að vera gamall????

í Box fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þú getur kíkt í prufutíma hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar á Kaplakrikasvæðinu. Heimasíða www.hfhboxing.com. Ekkert aldurstakmark en auðvitað því fyrr því betra ef þú vilt keppa.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok