Og er það fyrst og fremst vegna innri átaka, ekki aðgerða bandamanna. Þú verður að skilja að hatur þarna hefur magnast í marga áratugi, innrás bandamanna hefur lítið með það að gera. Líklega hefði farið svona sama hvernig og hvenær einræðið hefði verið fellt. En eins og sagan hefur sýnt okkur að þá eru lönd nokkur ár eða jafnvel nokkra áratugi að komast upp úr því, en oft fara þau svo á betri tíma en hefur þekkst þar í landi. Bandaríkjamenn eru ekki ennþá farnir frá Þýskalandi og þar er fínt að búa.