Þetta hljómar eins og einhverskonar harmonizer. Án þess að hlusta náið, þá heyrðist mér hann vera stilltur áttund hærra þ.e. harmonizerinn. Svo var líka fuss með.
Þetta er sniðugt tæki, en gerir menn að aumingjum. Þetta er sama dæmið og þegar farsímarnir komu, þá hættu allir að muna símanúmer, en með þessu tæki verða allir tóndauðir :)
Já, það er hægt. En það er að fyllast pantanirnar fyrir jól hjá þeim, þannig að ég veit ekki hvort að það sleppur fyrir jól. Þú getur sent mér mynd og ég skal athuga fyrir þig, en ég er ekki bjartsýnn á að það nái í gegn.
Þetta er handsmíðað eins og ég sagði. Það sem fólk á erfitt með að átta sig á eru verðin í þessu sambandi. Í kína er vinnuafl ódýrara en að fjárfesta í vélum. Þegar menn sjá tvö eintök af sama hljóðfærinu, þá sést að þetta er handsmíðað þ.e. hvert eintak er einstakt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..