Ég held að Mezzoforte sé eiginlega bara samansafn af okkar bestu hljóðfæraleikurum : Gulli Briem á trommur, Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Friðrik Karlsson á gítar og Jói Ásmunds á bassa. Og auðvitað eru fleiri góðir. Þar sem að þú fórst nú að minnast á sólóplötuna hjá GP þá fannst mér bara ekkert varið í hana, og þar sem að þetta er nú frábær gítarleikari þá bjóst ég við einhverju betra frá honum.