Ég geng um bjartan dal, í gleðikasti dansa við úlfinn syng hástöfum með hrafninum. Þá sé ég konu í hvítu, sem hvíslar að mér blíðlega “Palli svakalega ertu sætur” Skógurinn fellur yfir mig. Úlfurinn bítur af mér fæturna, hrafninn plokkar úr mér augun. Konan í svörtu tekur röddina og öskrar með henni “Palli drullaðu þér á fætur”