Hann kemur inn færandi hendi, mat-mjólk-brauð, svo elda ég matinn. Við borðum. Um kvöldið liggur hann í sófanum, værðarlegur, eins og hann eigi heima hér. Nýtur lífsins og horfir á sjónvarpið, meðan ég sit við tölvuna. Næsta morgun er hann horfinn. Ekkert eftir nema Mjólkin-brauðið og ég. Og ég - læt mér það nægja.