Ahhh ég get ekki neitað að ég hugsa oft til gömlu góðu tímanna í BF og auðvitað ET. Alltaf þegar nýr spilari bættist í hópinn og bað um hjálp var honum hjálpað en ekki skitið yfir hann og hann kallaður aumingi og noobi og honum svo kickað! Svona er þetta því miður orðið og mér finnst skömm af þessu!
Auðvitað er mikill munur á þessum leikjum, annars væri ekkert vit í að gera þá, hins vegar er Cod 2 samt Cod! Ég sagði aldrei að Cod 2 sé Cod 1, alveg eins og BF2 er ekki gamli BF
ég er sko ekki að tala um cod heldur “cod 2” Skrýtið að lesa þetta þar sem ég hélt að Cod 2 væri líka Cod :O Ég sé það að ég verð að fara að standa mig í þessu! Er CS:S kannski ekki CS??? Eða BF2 ekki BF???? AAAAAAA
Ég er ekki að segja að við séum einhverjir englar og ég veit ekki nema um það bil 2-3 í klaninu hafi verið með mikinn kjaft. Einn sem var áður en ég eignaðist WM og einn eftir það sem fékk reyndar strax aðvörun, þar sem við Lappi (sem var meðstjórnandi í WM) settum strax þá reglu á að sá sem er með kjaft og leiðindi á server er fyrst ávíttur og síðan rekinn ef leiðindin halda áfram. Og ítreka ég að meðlimir WM eru ekki endilega einhverjir englar sem segja aldrei neitt….
Ég hætti aðallega að spila af því að það fór að verða svo leiðinlegur mórall í þessu samfélagi. Mér finnst ótrúlegt að það sé ekki hægt að spila tölvuleiki á Íslandi án þess að það sé skitið yfir allt og alla
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..