Ég var að vinna og missti af þættinum. Ég er svo að vinna til sex og missi af endursýningunni :/ Er þetta 20 ára afmælisþátturinn þar sem allir koma aftur saman? Ég hef lesið eitthvað um svoleiðis á netinu. Þú mátt endilega segja mér hvað gerðist!
Vímuefni og fíkniefni er ekki það sama. Og jú, áfengi er fíkniefni. Fólk getur þróað með sér fíkn í áfengi, sem gerir það að fíkniefni. Áfengi er einnig vímuefni, þar sem neysla þess getur orsakað vímu.
Er þetta ólöglegt? Öll svona hjól? Ég man að þegar ég hef séð svona í útlöndum hefur verið tekið fram að það sé ólöglegt að flytja þetta inn til Íslands, en ég hélt að einhverjar gerðir af þessu væru leyfðar…
Já maður heyrir stundum um að fólk sem missi prófið noti þetta bara innanbæjar. Annars hef ég verið að spá, þarf ekki að hafa próf á létt bifhjól til að mega keyra þetta? Missir maður það ekki líka ef bílprófið er tekið af manni?
Það var talað um það í fréttunum um daginn… ég ætla að leita að því, bíddu aðeins… Þetta er það frsta sem ég fann http://www.sudurland.is/news.asp?ID=1746&View=Article og þeir vísa svo í mbl.
Þetta var allt búið og gert. Bæði fóstrið og Gus eru dáin. Susan átti bara að þegja, hún ætti að geta það fyrst Darcy gat það. Hún átti heldur ekkert með að skoða sjúkraskýrslurnar sem komu henni ekkert við.
Paul stakk upp á þessu, ekki hún sjálf. Auðvitað vildi hún ekki láta henda sér út og missa manninn sem hún elskar. Sástu ekki að það breytti algjörlega viðhorfi Karls til þessa þegar hún sagði þetta? Susan átti heldur ekkert að vera að skipta sér af þessu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..