Ohh já ég er svo sammála. Þetta er alltaf í sjónvarpinu og útvarpinu, og mengar huga foreldra minna :( Halló, hvað eigum við unglingarnir þá að gera okkur til skemmtunar? Foreldrar mínir eru of uppteknir til að geta farið eitthvert með mér í ferðalag, og ég myndi hvorteðer ekki vilja fara með þeim þar sem þau skilja mig alltaf útundan í útilegum. Ef það á að koma í veg fyrir að unglingar fari á útihátíðir, verður að finna eitthvað skárra fyrir okkur að gera.