Takk kærlega fyrir þetta. Ég hinsvegar gerðist bara brattur í gær og keypti mér snilldarkassa í Tónabúðinni (v.á.m. bezta búðin í dag). Tacoma heitir gripurinn og kostaði mig 94 þús, en ég setti upp í magnara sem ég átti og borgaði 30.000 kall. Ég hef skoðað þessa síðu, frábær síða, en þeir senda ekki alla hluti út fyrir U.S. Til dæmis Music Man Luke, sem mig dreymir um þessa dagana. Takk fyrir allt.