Ég er með MM-4 frá line6 sem er svona fjöleffect og með haug af modulation sándum eins og flanger og phaser… það er bara ekki það sama… langar í staka pedala og fíla ekki line6 í þeirri deild… s.s. vill ekki digital pedal.
Var bara að lesa þetta núna… hefði getað reddað þér allavegana einu stykki… Vonandi reddaðist þetta hjá þér… Alveg viss um að menn eins og Brooks, Gunnar eða Þröstur hefðu getað reddað þér 2 stykkjum…
Var oftast með D´Addario 10-46 En hef ekki verið að æsa mig eins mikið undanfarið að notast við ákveðna tegund… en 10-46 en þykktin sem ég nota aðallega… Hef mikið notað Ernie Ball undanfarið og GHS Boomers…
Einn að selja notaðan microcube 60 http://live2cruize.com/spjall/showthread.php?t=87226 Alveg möguleik að ná honum á 30 þús. staðgreitt myndi maður halda… ef svo er ertu kominn með hörkumagnara sem nýtist einnig í hljómsveitarbrölti :) 60 wött.
Ditto on the Microcube… var með einn svona 30 watta… einn besti stofumagnari sem ég hef átt (fyrir utan mesuna mína… döh)… Mjög fjölhæfur og flott sándið í honum… fílaði blackface hermirinn í honum…
Jamm, einn svona aktívur monitor með 12“-15” keilu væri nóg fyrir æfingarhúsnæðið. Behringer eru með þannig græjur 300-400 watta magnari í þessu og held að þetta kosti undir 50 þús niðrí Hljóðfærahúsinu/Tónabúðinni… ódýrasti kosturinn held ég… JBL, Mackie og fleiri eru með svona græjur en kosta töluvert meira. Dettur líka alltaf svona notað inn öðru hverju… aldrei verra að grípa svoleiðis díl þegar það gefst.
það voru bara hausarnir minnir mig,,, ekki boxin… þeir hafa bara verið að merkja boxin hlutlaust núna… þ.e. ekki tengja þau við ákveðna línu… sbr. JCM 900, JCM 2000…
Ef þú ert að hugsa um budget… þá er það einn aktívur mónitor mic og snúra á milli :)… hægt að finna Behringer 300-400 watta monitor notað og vera með þokkalegan mic við það… Shure SM58 er klassískur valkostur… en annars er standardið 2 monitorar + magnari + mixer… magnarinn getur verið innbyggður annaðhvort í monitor-ana eða mixerinn eða bara standalone… Mæli með að leita að notuðu… Hvað er budget-ið hjá þér? Gefur manni meiri hugmynd hvað myndi henta :)
Þetta er bara stock photo… stendur ekkert um hversu gömul mynd þetta er… ;) Hér er mynd af svona boxi nýju: http://www.atlantamusicbrokers.com/ebay/Marshall_1936_2x12_Cab_002.jpg Sjá líka síðu framleiðanda: http://marshallamps.com/product.asp?productCode=ExtCabs&pageNumber=2 Ekkert verra box þótt það sé komið til ára sinna… bara engan vegin 2 ára gamalt box…
Ef þetta er JCM 900 box þá er það töluvert eldra en 2ja ára… þónokkuð mörg ár síðan þeir hættu að merkja boxin með JCM 900 línunni enda er hún vísun í 90´s tímabilið.
nei, ég er með einn tsl haus… síðan er ég með 2 jcm 900 hausa… síðan er ég með 2 marshall box,,, annað jcm 900 og hitt jcm 800 s.s. 3 marshall hausa og 2 box… var því mjög sáttur að eignast ampeg boxið líka…
ég held að ég haldi þeim líka saman… þetta er í notkun upp í æfingarhúsnæði hjá mér… þó ekki af mér sjálfum… TSL 100 hausinn með JCM800 boxinu mínu er gjörsamlega í 1. sæti hjá manni… hef eingöngu verið að nota hann…
Ég fékk hann á 20 þús… alveg lygilega gott verð… gæjinn var að losa sig við þetta og það var kominn tími á að hreinsa magnarahausinn… búinn að græja það að mestu núna…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..