Já það er satt með flæðið það er ekki alveg að virka hjá honum, mér hefur alltaf fundist það síðan ég heyrði hann fyrst rappa sem var fyrir löngu. Hann ætti heldur ekkert að vera drulla svona yfir aðra rappara, hann fer ekkert á hærri stall fyrir það, fær bara fólk á móti sér. En ef þú pælir í því eru textarnir hans mjög góðir, allavegana miða við rappið sem hefur verið almennilega gefið út hérna á Íslandi. Ég hlusta ekki mikið á rapp en mér finnst rosalega gaman að hlusta á hann inn á milli...