Hlutfall er semsagt magnið sem þú er búinn að deila, deilt með magninu sem þú ert búinn að sækja.. þannig að ef þú ert búinn að deila jafn miklu, eða meiru heldur en þú sóttir þá verður hlutfallið 1 eða hærra, en annars fer það niður fyrir 1. Held að það sé æskilegt að vera með 0,9 eða hærra en náttúrulega því hærri tala því betra. Torrent samfélagið byggist náttúrulega á því að fólk deili gögnum sem það sækir og þessvegna ef þú ert að sækja mikið meira heldur en þú deilir þá er þér hent út.