Ég fór í gær, en það var sagt að það yrði bara opið fyrir æfingar. Þeir bönnuðu samt engum að fara í lyfturnar. Það var bara opið í Ármannslyftunum, Jón Oddur og Jón Bjarni, en það var samt geðveikt gaman. Ætli það hafi ekki verið um 80-100 manns þegar mest var og örugglega helmingurinnn á brettum ef ekki meira. Ég ætla að vona að það verði opið í dag, alla vega er ég með brettið í bílnum og er tilbúinn að fara upp eftir.