Ég er einmitt í sömu pælingum og þú og vill hljóðeinangra bílskúrinn minn. Ég kemst næst því að einangrun sem kallast Hljóð-100 besta einangrunin. Ég sá einhvern samanburð um það að hún gæti dempað niður 58dB, miðað við að steinull tekur 48dB (tölurnar kannski ekki alveg á hreinu.) Svo þarf að klæða þetta, líklega með gifsi. Sjá nánar á slóðinni: http://www.tempra.is/einangrun/utveggir.htm Ég veit reyndar ekki hvort þetta henti í hljóðver, en þykir það samt líklegt.