Hvaða rétt? Ég hef engan rétt enda þarf ég engan rétt, og ekki þú heldur. Ég er ekki að sleppa því að taka vondu dæmin með, ég veit vel að það eru svartir sauðir (eins og ég er búinn að segja 1000 sinnum). Ég er að reyna að benda á það jákvæða og góða sem er yfirgnæfandi í íslam en fær enga umfjöllun. Fyrst þú ert að líkja þessu við vímuefni þá er þetta svipað og að segja að gras sé slæmt vegna þess að tveir heróínfíklar byrjuðu á grasi. En það vita allir að gras er frábært!