Þetta er Nóra mín og litli nýi gaurinn á heimilinu sem enn hefur ekki hlotið nafn. Þau eru nú engir sérstakir vinir, ég lagði lillamann þangað til að sjá hvort þau myndu venjast og þau lágu nú hlið við hlið í slatta tíma. :)
Ég og Malla lágum inni í rúmi að knúsa áðan, hún byrjaði að purra og lagðist á mig. :) Hún leitar alltaf í að liggja á manni eða snerta mann þegar hún er í knúsustuði. Algjör snúlla!
Þessi var tekin stuttu eftir miðnætti þann 31. des. Ég þurfti að teikna yfir bílnúmerið, ég vona að það sé í lagi! Hún var tekin á Canon s45, næturstillingu.
Svona leit borðið mitt út á Gamlársdag. Á myndinni er kalkúnn, waldorf salat, ceviche, brauð með því, sósa, brúnaðar kartöflur, venjulegar fyrir mömmu og hvítvín. Þetta var geggjað góður matur, fyrsta skipti sem ég elda kalkún og það tókst vel!
Það getur verið sniðugt að eiga svona, í svona orðabókum eru oft hlutir sem maður lærir ekki í skóla en eru samt basik hlutir, t.d. verkfæri, hlutir í bílum og slíkt.
Sá þennan krúttuvoffa þegar ég var að keyra um Snæfellsnesið, eins og glöggir sjá er hann að gæða sér á kattarmat úr dós! Pabbi hans keypti þetta handa honum og gaf honum svo bara dósina. :)
Malla og Nóra dýrka þennan skáp, en þær komast ekki í hann nema með hjálp, eða ef það er stóll sem þær geta hoppað af. Oftast þegar þær heyra að það sé verið að opna skápinn, koma þær hlaupandi. :)
Ég vissi það reyndar fyrr en sá það greinilega þegar ég fór í British Museum árið 2004 hvað egyptar virtu ketti mikið. Það var allt fullt af flottum kisustyttum og nokkrar kisumúmíur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..