Þegar maður les svona gerir maður sér grein fyrir hvað maður er heppin að vera í skóla eins og ég er í. Það er boðið upp á sérkennslu fyrir nemendur sem þurfa þess, svo er manneskja í íslensku og náttúrufræði sem situr inní kennslustofunni og gengur um og hjálpar þeim sem þurfa á meðan kennarinn talar. Reyndar er ég kannski ekki besta manneskjan til að dæma um þetta, hefur alltaf gengið vel í skóla. Flestir kennararnir eru ágætir en ég man reyndar eftir einum gaur sem var svo mikill hálfviti...