ég sótti um í þennan skóla í London, fór líka út í open day og fannst mjög flott aðstaða og skemmtilegar útskýringar hjá kennurunum, Við félagi minn fengum að ráfa þarna um í rúma 5 tíma skoða hvað nemendur væru að gera og öll stúdío-inn sem að var mjög skemmtilegt ég komst inn en ákvað samt að fresta þessu þar sem að þetta er of stór reikningur með námslánum og öllu en af því sem að ég sá þá mæli ég með þessum skóla Þess má geta að Mugison og einn vinur hans kláruðu þennan skóla