ef ég var að reyna að selja þetta á 250þús þá var það með öllu, þaes diskum og hardware. það hefur alltaf verið á 200þús, meira að segja nokkrir sem hafa sæst á það verð en svo vegna hinna og þessa ástæðna hefur verið hætt við söluna
hann var ekkert að tala um að reikna vsk og flutning af mínu setti, heldur settið sem einhver benti á á ebay. það er ekkert að því að gera það, þar sem þetta er eina settið sinnar tegundar á íslandi
ég má til með að benda á það að þetta “tilboð” ef svo má segja gildir bara út næstu helgi.. ég þarf svo nauðsynlega pening akkurat núna að ég lækkaði verðið. það mun vera hærra ef ég reyni að losna við það seinna
Ég hef átt Ashdown gaur í held ég 5 ár og aldrei hefur kvikindið bilað.. Síðan á ég eitt aðeins eldra fender bassabox og bassman magnara, bæði hefur oft bilað. Og svo bassaleikarinn í hljómsveitinni sem ég var í, hann var með Ampeg stæðu og hausinn bilaði tvisvar á þessu ári sem við spiluðum saman.
haha, ertu ekki að grínast.. ef þú getur plöggað svona á 50þúsund, þá kaupi ég 5 stykki. En eitt, þú verður að gera þér grein fyrir því að þetta er Ludwig sett frá 1974… Að segja að Ludwig sándi illa er eins og að segja að Gibson séu krappí gítarar.
Ég ætla að ganga það langt að segja að þú vitir ekki rassgat um hvað þú ert að tala um.. Þessi sett enda oftast á milli 1000-2000$ og þú veist að þá erum við að tala um mjög mikinn pening komin hingað til landsins… Annars nenni ég ekki að eyða meira púðri í svona fólk eins og þig, set bara mína auglýsingu upp og læt hana eiga sig og fólk bara segir það sem það vill um hana
Það er spurning um hvort er sjaldgæfara… Og ég held að það sé ekkert bara einhver að fara að kaupa þetta. Það eru safnarar búnir að hafa samband við mig og ég býst við því að þeir viti hvað þeir eru að fara út í
nettur… en þarna. Rauðu settin eru ekki sambærileg og hitt bláa myndi enda langt yfir 100þús kalli hingað til lands. Hvernig væri að leyfa minni auglýsingu bara að vera, og ef þú hefur áhuga… þá kannski svara. Annars ekki. sé ekki hvaða gróða þú hefur í þessu.. ok?
titillinn er nú meira að gamni gerður. en með verðið… þá tjékkaði ég á svona um daginn, og fann svona sneril, hann kostaði nú ekki nema 60þús krónur á ebay. á ég að selja þetta dýrar þá eða?
Ekki hef ég gert bókhald um þessi kaup og fengið endurgreiddan vsk af þessu. Ef það hefur ekki gerst þarf ég ekki að skila honum af sölu.. voðalega ertu snjall.
hehe. þetta eru reyndar ekki notaðir diskar. hef aldrei sett þá í spilarann og tveir eru í plastinu. og þar á meðal er jeff buckley diskurinn sem kostar nýr hérna heima 3200kr… en samt, töff svar hjá þé
ok nett hjá þér en allaveg eru tveir búnir að vera að spá í því á þessu verði. En núna er ég til í að láta það ásamt öllu, diskum og statífum á 200.000kall. Og ef einhver dissar það verð, er hann ekki heill á geði
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..