Sælir. Mér finnst virðingar vert að menn skuli standa saman þegar verið er að bjóða eftirlíkingar af þekktum merkjum til sölu. Á þessum tímum, sérstaklega, er það mikils virði að menn skuli vera á varðbergi þegar allskyns gylliboð fljóta hér um á netinu. Líðum ekki ósvífnum aðilum að komast upp með svindl og svínarí á saklausu fólki sem veit ekki betur. Það eru nákvæmlega þið sem getið komið viðvaningum til hjálpar þegar um hljóðfæri er að ræða. Sælir að sinni.