Svalt, ég kíki á þessa síðu. En já, með T-toppinn, þá er ég algjörlega sammála. Ég átti Camaro '89 sem var með T-topp, og hann var alltaf tekinn niður við öll tækifæri. Það er drullugaman að rúnta í góðu veðri með plöturnar í skottinu, allt opið og maður heyrir meira í bílnum. Ekki að það skipti öllu máli, það er bara svona ákveðinn fílingur. Sá bíll er/var með með 305 og sjálfskiptur, frekar slappur mótor en má eiga það að hann eyddi ekkert svo miklu. Sá bíll var upprunalega í amerísku...