ég kaus hænuna út af eftirfarandi brandara. Hæna og egg liggja upp í rúmi, hænan hallar sér upp að rúmgaflinum ánægð á svip og reykir sígarettu. Eggið, frekar fúlt, grípur sængina, veltir sér og segir “jæja, þá höfum við loksins svarað þessari spurningu.”