Ég er mjög ánægður með þessi úrslit, en við verðum samt að koma okkur sem fyrst aftur á jörðina eftir að hafað verið í 1. sæti í einhver 5 ár. Verðum einnig að gera okkur grein fyrir því að deildin er nýbyrjuð, og getum við poollararnir gert álíka stór mistök og tapað 1. sætinu til Chelsea eða eitthvað annað lið.
Það var verið að tala um Man Utd í korknum, og því hélt ég að fólk gæti skilið það sem ég var að skrifa. Ég var að tala um það að Real Madrid, Barcelona og AC Milan væru betri en Man Utd og að Liverpool og þau hin sem ég nefndi kæmu stutt á eftir Man Utd.
Nei, en þeir eru með þeim betri. Real Madrir, Barcelona, AC Milan eru öll betri, svo koma Liverpool, Chelsea, Inter, Roma og Bayern M. stutt á eftir að mínu mati.
Að mínu mati er ekkert lið sem Bayern eiga eftir að spila á þessarri leiktíð betra en þeir. Öll liðin sem eru betri spila ekki í Þýskalandi og eru öll í meistaradeildinni.
1. Oliver Kahn 2. Fabian Barthez 3. David James Kahn samt lang fyrir ofan hina mennina, enda hefur hann verið uppáhalds markvörðurinn minn síðan eg man eftir mér!
Einu gleymi ég ekki, það er það að allir united menn sem ég þekki voru alltaf að gera grín af mér og vinum mínum sem halda með Liverpool því Liverpool áttu ekki mjög góða byrjun í fyrra. Núna þegar ég og hinir gera svo grín af þeim, þá má ekki segja eða gera neitt því þeir brjálast. Eruð þið alltaf svona súrir, bara spyr? Bendið alltaf á síðasta ár, sem þið stóðuð ykkur vel á og Liverpool byrjuðu ílla á þegar eitthvað er sagt við ykkur.
Ég hef nú ekki ennþá séð mig láta eins og 5 ára krakka, enda tel ég mig hafa mikið meiri þroska en það. Eini sem ég hef tekið eftir láta eins og 5 ára krakki er united maður og kallar sig ghm hérna inná huga.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..