Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: KK eða KVK

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Af hverju vilt þú endilega vita það?

Re: KK eða KVK

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Gaur. Þetta hefur þegar verið kannað. 80% hugara eru strákar og 20% eru stelpur. Það er óþarfi að gera þessa korka endalaust.

Re: Finna fall nafnhátta...

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Tjah, sko, þetta gæti verið svona lengra komin íslenska sem ég er ekki búin að læra ennþá. Þegar minnst er á þetta fer mig eitthvað að ráma í íslenskutíma þar sem var eitthvað talað um að nafnhátturinn væri svoldið frábrugðin einkennum sagna að einhverju leiti. Gæti hafa verið þetta.

Re: Finna fall nafnhátta...

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Tjah, ég gæti haft rangt fyrir mér en ég hélt að sagnir fallbeygðust ekki. Það væri einmitt einkenni fallorða?

Re: Jólaþema

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Nei, ekki strax. Hefurðu aldrei heyrt um að skreyta á Þorláksmessu? Þannig er það alltaf heima hjá mér, fyrir utan aðventuljósin.

Re: hvernig get ég látið lög inná ipod án þess að nota itunes? HJALP

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ef þú átt nýrri gerð af ipod geturðu geymt drasl inni á honum samhliða lögunum sem þú setur inn í gegnum itunes. Þessar skrár geturðu þó ekki opnað á ipoddinum sjálfum, bara flutt þær á milli tölva.

Re: *Stripp*

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Síðasta herbergið mitt var stærra en allar stofurnar sem við höfum átt, nema náttúrulega sú sem var í þessu húsi þarna, hún var jafn stór. Mér fannst það leiðinlegt, lítil herbergi eru betri.

Re: hjálp!

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Myndi ekki nota þetta sem einhver sendi inn um bók eftir Stephen King. Þá heldur kennarinn þinn að þú sérts geðveikt fær í ensku.

Re: CAPS LOCK?

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Já, ég gæti það. Þú gætir líka fengið mína með því að smella á notendann minn.

Re: CAPS LOCK?

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Jájá, allt í lagi. Við erum góðar hérna megin. Hvernig hefur gengið í prófunum? Bara eitt svar í viðbót svo enginn verði reiður um samtöl sem eiga heima á msn :P

Re: CAPS LOCK?

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Neinei, þú misskildir þetta. Ég og ég viljum ekki capslock dag. Það erum þá við sem viljum ekki capslock dag.

Re: Upplýsingar - Réttarhald

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Heldurðu að einhver komi heim til þín og berji þig? En jæja, myndi frekar biðja stjórnenda að eyða því. Annars veit ég ekki með kæruna, þyrftir að spyrja lögfræðing.

Re: Smá leikur =)

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Lítill, grár hundur.

Re: Upplýsingar - Réttarhald

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Dunno. Held ekki. Hvað er hann að skemma með því að segja hver þú ert? Hann er ekki að hóta þér neinu.

Re: CAPS LOCK?

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Já… Nei. Nei. Af og frá. Non, nein, nej! Við viljum ekki capslock dag.

Re: Gíslasaga Súrssonar

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þær voru krappí, maður.

Re: Dreifkjörnungar?

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Vá, dreifkjörnungar eru heilt lífríki. Það gæti ekki verið mjög erfitt að skrifa um þá. Skrifaðu bara um einstakar tegundir af dreifkjörnugum og hvað þér finnst athyglisverðast um það og þannig :P

Re: Gíslasaga Súrssonar

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Kona Gísla heitir Auður. Alveg eins og ég! Nema hún var Vésteinsdóttir. Bróðir hennar hét líka Vésteinn, ef ég man rétt. Vésteinn, Gísli, Þorgrímur og Þorkell ætluðu að ganga í eitthvað fóstbræðralag en það gekk ekki upp af því að Vésteinn vildi ekki ganga í fóstbræðralag með Þorgrími og þá vildi Þorkell ekki vera með Vésteini og þá varð Gísla ljóst að þetta gengi ekki upp, svo myndi fara sem einhver hafði spáð fyrir. Ég gæti skrifað um þessa bók í allt kvöld en ég hef annað að gera áður en...

Re: djöfls keðjubréf

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Fólk tekur mig að sjálfsögðu ekki alvarlega en það skilur að ég vil ekki fá keðjubréf og hættir þess vegna að senda mér þau.

Re: djöfls keðjubréf

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Gleymdi að segja að ég fæ þau afar sjaldan.

Re: djöfls keðjubréf

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég hóta hverjum dauða sem vogar sér að senda mér keðjubréf.

Re: Í hvaða....

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Reyndar er ég nú með Halldóru. Hún er mjög góð. Ég bara er enginn íslenskusnillingur.

Re: Í hvaða....

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Jább. Ég er ekkert léleg í íslensku en hingað til hafa einkunnirnar verið hærri í ofangreindum fögum :P

Re: Í hvaða....

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Stærðfræði Saga Enska Haha, ég sagði ekki íslenska. Eruð þið ekki öll geðveikt hissa?

Re: Er ég sá eini?

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Já, ég var einmitt að pæla í því hvar þú værir. Ég er mjög mikið inni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok