Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nodferatu
Nodferatu Notandi frá fornöld 36 ára karlmaður
404 stig
Áhugamál: Metall
Endless Power? This is Perfect! - Bryan Fury

Corrosion of Conformity (11 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Pepper Keenan, söngvari og gítarleikari Suðurríkja-rokksveitarinnar Corrosion of Conformity. Syndsamlega vanmetin hljómsveit, mæli sérstaklega með plötunni Deliverance en Wiseblood er líka mjög góð. Þessir menn eru bara kúl og algjörir snilldar tónlistarmenn.

Kylähullut! (11 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Þetta er eitt af side-projectum meðlima Children of Bodom, en það er hann Alexi Laiho, gítarleikari og söngvari COB sem spilar á gítar í þessari hljómsveit auk þess sem hann syngur í nokkrum lögum. Þessir brjáluðu finnar spila tónlist sem hljómar eins og blanda af COB, Motörhead og pönki, þetta er allt á finnsku og lögin fjalla aðallega um kjánalega hluti og áfengi. Algjör snilld!

Behemoth (16 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Death Metal meistararnir í Behemoth!

Satyricon (6 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þetta er lineup-ið á Nemesis Divina. Þarna sjást þeir Frost, Satyr og Kveldulv á einhverri hallærislegustu ljósmynd allra tíma en það breytir því ekki að á sama tíma og þessir menn settu nýja staðla þegar kemur að því að líta asnalega út settu þeir líka nýja staðla í Black Metal. Að mínu mati er Nemesis Divina ein besta Black Metal plata sem til er.

Naglfar (27 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Sænska Black Metal hljómsveitin Naglfar, hún spilar Melódískan Black Metal og er að mínu mati, ein besta Black Metal hljómsveitin frá Svíþjóð.

Darkthrone (6 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Norsku Black Metal guðirnir Nocturno Culto og Fenriz sem eru hljómsveitin Darkthrone, ein áhrifamesta og goðsagnakenndasta Black Metal hljómsveit allra tíma.

Finntroll (8 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Furðulegu finnsku snillingarnir.

Chad Ginsburg úr cKy (6 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Nýja cKy platan kemur út 28. júní!!

Pantera (12 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Er hægt að fá nóg af þessum meisturum?

Deicide (12 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 1 mánuði
Satanísku snillingarnir í Deicide… áður en Glen Benton rak Hoffman bræðurna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok