Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Er Andy Kauffman enn á lífi? (5 álit)

í Fræga fólkið fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég las um daginn á yahoo news að komið hafði fram að Andy Kauffman, leikari í Taxi þáttaröðinni hafi falsað andlát sitt og sé sprelllifandi í dag. Fyrir þá sem þekkja ekki Andy þá var gerð um hann kvikmynd sem heitir Man on the moon með Jim Carrey í aðalhlutverki. Svo er bara spurningin hvort að þetta sé satt eða ekki. Ég veit ekki hversu mikið mark ég á að taka á þessari frétt kannski ég taki mark á henni þegar hún birtist í mogganum.

Augun (2 álit)

í Dulspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég vaknaði eina nóttina (það er orðið svolítið langt síðan) eftir frekar óskemmtilegan draum. Mig dreymdi mjög dökk augu með mjög dökkri augnaumgjörð og augabrúnum. Í bakgrunninn var fjólublár litur. Ég heyrði rödd sem var að dáleiða mig. Ég var mjög skelkuð þegar ég vaknaði og þessi draumur hræddi mig mjög mikið þó hann hljómi kannski ekki þannig. Veit einhver hvað þetta þýðir.

Sólarplexus (3 álit)

í Dulspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hvað er sólarplexus, hvar er hann og hvernig tengist hann dulspeki?

Jay Leno (0 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég veit ekki hvort að þessi grein á við í þessum kafla en ég fann ekkert annað sem átti við. Ég horfi stundum á Jay Leno og ég verð að segja eftir árásirnar á tvíburaturnana og stríðið í Írak finnst mér Jay Leno orðinn frekar ósiðlegur. Finnst ykkur rétt að nota afleiðingar stríðs og annara hörmunga til að gera grín af því. Eftir 11 september gerði hann grín af Afgönum. Mér finnst það alls ekki fyndið. Í kvöld horfði ég á hann gera grín af pyntingum hermanna á stríðsföngum. Hvort sem hann er...

Blokkir (8 álit)

í The Sims fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Mikið væri gaman ef sims 2 hefði blokkir sem fólk gæti búið í. Getiði ímyndað ykkur blokk með 20-30 simsum. Það yrði fjör.

Sims creator (3 álit)

í The Sims fyrir 20 árum
Er hægt að búa til háhæla skó í sims creator. Hvernig er það gert.

Stýri fyrir Dreamcast (4 álit)

í Leikjatölvur fyrir 20 árum
Ég á Dreamcast tölvu frá 99 og nokkra fylgihluti. Einn af þeim er stýri og svona bensíngjöf (pedali) og ég vil endilega losna við það. Ég er ekki búin að ákveða hvað ég á að láta það kosta en það verður ekki mikið. Ef þið hafið áhuga endilega svarið þessum þræði.

Hús (0 álit)

í The Sims fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Getið þið nokkuð hjálpað mér? Ég hef downloadað nokkrum sims húsum af netinu. Hvað á ég að gera til að segja þau á lóðirnar sem ég kaupi.

Hlekkir (1 álit)

í The Sims fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Mig langaði bara að leggja til að það væri hreinsað aðeins til í linkasafninu hérna. Það er rosalega margir linkar sem virka ekki. Kveðja Kitkat

Eru Queens of the stone age að hætta? (22 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég hef heyrt fréttir af því t.d. á www.qotsa.com að Josh Homme söngvari hafi rekið bassaleikarann Nick Oliveri og gítarleikarann Mark Lanegan úr hljómsveitinni. Ástæðan er sögð vera eilíft partýstand Nick Oliveri. Á www.marklanegan.com segir að Mark sé hættur í Queens of the stone age vegna þess að hann ætli að einbeita sér að eigin sólóferli. Ekki hefur komið fréttatilkynning frá Josh Homme.

Vandræði með viðbætur (2 álit)

í The Sims fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég keypti mér The sims house party í gær og svo þegar ég var búin að installa honum og ætlaði að fara spila hann þá kom upp einhver gluggi sem sagði að þar sem ég væri komin með viðbót þyrfti ég eitthvað að uppfæra þetta svo ég gerði það en það stoppar alltaf þegar tölvan er komin upp í 23% og þá kemur upp gluggi sem segir að það sé einhver villa. Hefur þetta komið fyrir hjá einhverjum öðrum? Þarf ég að uninstalla upprunalega the sims leiknum og installa honum svo aftur? Svör eru vel þegin.

Flutningar (4 álit)

í The Sims fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Getur fjölskylda flutt á milli húsa. Það eru nefnilega nokkur hús sem eru frekar dýr og ég veit ekki hvernig maður getur flutt inn í þau.

Er bloggið að ganga frá gömlu góðu dagbókinni (1 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég hef verið að ræða að undanförnu við bróðir minn hvort að bloggið sé að ganga frá gömlu góðu dagbókinni. Þar sem ég er sjálf bloggari finnst mér þetta alveg fráleit hugmynd. Það mætti kannski líka nefna að ég hef líka skrifað í dagbók frá 16 ára aldri (ég er 27 ára núna) Í venjulegum dagbókarskrifum segir maður frá öllu og dregur ekkert undan en þegar maður bloggar þá segi maður aðallega frá ytra lífi sínu hvað er að gerast, hvað finnst manni um hluti, skoðanir manns á t.d. bíómyndum,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok