Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Jakvaedni
Jakvaedni Notandi síðan fyrir 16 árum, 5 mánuðum 4 stig
Áhugamál: Tilveran
..,_

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Hér höfum við dæmi um einstakling sem er kominn í sjálfheldu. Það eina sem hann getur gert er að taka orð mín úr samhengi og leggja mér þannig orð í munn. Einnig reynir hann að sjúkdómsgreina mig. En í ljósi þess að þetta er nú fyrsta innlegg hans í umræðuna er ofangreindur skýring líklega ekki fullnægjandi. Nær væri að segja að þetta sé bitur karlmaður sem lifir enn í þeim draumaheimi að konum beri að nauðga og kúga og helst gerðar myndbandsupptökur af atburðunum. En það og orð kurt lýsa...

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Heimildir finnurðu hér á nokkrum stöðum og ef þú hefur fyrir því að lesa þig til. Það sem uppi stendur nú eftir þessa umræðu er að klám leiðir til kúgunar karla á konum, kynferðisofbeldis og mannsals. Það er jafnframt niðurstaða allra rannsókna sem gerðar hafa verið um málið og því ekki furða að þér hefur ekki tekist að hrekja það. Í staðinn ertu farinn að kalla staðreyndir alhæfingar í þeirri veiku trú að það hljómi sem rök.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það er einkenni fólks sem er búið að mála sig út í horn að það fer að leggja inn svona “gagnleg” innleg í umræðuna. Enda ekki furða að þú ert þar, því jafnrétti er sjálfsagt.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Jú, framleiðsla og aðgengi að klámi tengist jafnréttisumræðunni beint. Klám ýtir undir kúgun kvenna, brýtur niður sjálfsmynd þeirra veiku og auðveldar körlum að kúga konur.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Nei, það er bara einu sinni í mánuði. En þú mátt ekki vera súr þó við séum að rísa upp úr kúgun þinna líkra.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Sjálfsvirðingu er auðvelt að skemma ef menn kunna það. Þetta er ein slæm leið. Eins og staðan er núna í dag hefur verið minna um að karlar séu plataðir út í þetta. Það er vissulega gott en skýrist að sjálfsögðu að mestu leyti af því í hvað miðillinn er notaður.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það er líka rosalega gaman þegar fólk gagnrýnir einstakling fyrir eitthvað og gerir svo sömu mistök í sömu setningu. Síðan kemur ný efnisgrein og þar eru enn sömu mistök. Og aftur. Þannig að ég held að ég þurfi að standa við það sem ég sagði og veit að fólk er ekki í vafa, enda kemur hér fram mikil brenglun.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það segir mikið um málstað fólks sem lætur setningu eins og þín fyrsta er fylgja með við rökræður. Ég get fullyrt og það hefur líka verið skoðað að meirihluti þeirra sem klám og vændi stunda eru þar annað hvort gegn vilja sínum eða af neyð. Það er tildæmis ekki svo langt síðan að svíar skoðuðu þetta í tengslum við hinn nú deyjandi klámiðnað þar í landi og þetta var niðurstaðan. Sem verður að teljast vafsamt því almennt verður Svíþjóð að teljast gott land þegar kemur að því hversu gott er þar að búa.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það þarf ekki nema að horfa á brotabrot af klámmyndbandi til að finna svarið við þessari spurning. Og lýsingar ætla ég ekki að fara út í því hér eru börn að lesa. Klámiðnaðurinn í dag er rangur því hann nýta karlar til upphefja sjálfan sig og draga úr virðingu gagnvart konum.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Segðu það við börnin sem barnaníðingar tæla til sín á netinu. Nei, heimurinn virkar einfaldlega ekki svona. Sumt fólk er veikt og illt fólk notar það.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Þú skalt varast að stimpla fólk.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Til dæmis rannsóknirnar frá Gothmann Institut í Þýskalandi. Það er til ágætis grein um þetta í nýjasta tímariti þeirra sem er hægt að finna upp á bókhlöðu. Það er svo ekki rétt að konur séu ekki neyddar til að taka þátt í klámmyndum. Klámiðnaðurinn nýtir sér fátækt og vosbúð þeirra til að plata þær út í þetta, kúga þær og dreifa boðskapnum.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Umræðuefnið er klám en ekki kynlíf. Það sýnir kannski ákveðna brenglun á sjálfsmynd þinni að geta ekki gert greinarmun á þessu tvennu. Líklega er það ofneysla kláms sem því veldur. Þú ert orðin staðfesting á því sem ég er að segja.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Einmitt, karlar eru að nýta klámyndir til að kúga konur og koma þeim boðskap á framfæri að það sé í lagi að kúga konur. Það eru til reglur en eins og þú sérð hefur hingað til ekki verið farið eftir þeim. Afhverju þá að setja fleiri?

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það er ég ekki, ég myndi telja mig í flokki feminista sem gæta hófs í baráttunni.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég tengdi þetta svar við umræðuefnið og þá er það þetta sem við fáum út.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Nei, klámiðnaðurinn notfærir sér fyrirfram veikar sálir.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ef þú nennir ekki að lesa þér til skaltu ekki ætlast til að ég nenni að mata hlutina ofan í þig. Google er vinur þinn. Það sem fram fer í klámi er annað hvort beint eða óbeint gegn vilja konunar. Þar er saklaust fólk misnotað og lítillækkað og það svo notað til að lítillækka allt kvenkynið. Það er skömm af þessu.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Af því að karlar hafa nýtt klámmiðilinn til að kúga konur og koma þeirri kúgun á framfæri. Því er hann eins og hann er í dag og hefur þær afleiðingar sem hann hefur í dag.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Nei, en þó að þíð sjáið þetta ekki þá nýtur þetta víðtæks stuðnings í þjóðfélaginu, bæði meðal karla og kvenna.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Lestu lögin. Dreifing kláms er ólögleg. Og ekki af ástæðulausu.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Lestu þér þá til. Það fer eftir því hvernig að er farið, það veistu vel. Ekki ertu að verja nauðganir hérna?

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það þarf að útrýma klámi til að ná fram jafnrétti því klám dregur úr sjálfsmynd kvenna og virðingu karla gagnvart þeim. Þar að auki er klám ólöglegt og því ber að taka á þessu.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Lestu nú það sem ég skrifa. Allar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessum hlutum staðfesta það sem ég segi hér.

Re: feminismi!!!

í Tilveran fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Það eina sem skiptir máli er hvernig klám dagsins í dag er og þetta eru niðurstöðurnar sem gerðar eru á því. Það er því ekki hægt að verja þetta eða mæla með á þeim forsendum að hugsanlega væri hægt að búa til klám sem hefði ekki þessar afleiðingar. Ef út í það er farið efast ég jafnframt stórlega um að það sé mögulegt!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok