Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kjúklingasamlokur (6 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum
Uppskrift af mjög góðum kjúklingasamlokum fyrir 4: 300 g soðið kjúklingakjöt 1 dl sýrður rjómi 2 msk létt majones 1/8 púrrulaukur, hvíti hlutinn 1 grænt epli 1 til 2 msk karry 1/2 tsk aromat 1/2 tsk svartur pipar 4 beikonsneiðar 1 tsk olía 4 salatblöð 8 brauðsneiðar Fjarlægið skinnið og öll bein úr kjúklingakjötinu. Skerið kjötið í bita og setjið í skál. Sneiðið púrrulaukinn, afhýðið eplið og skerið í bita og blandið þessu saman við kjúklingakjötið. Hrærið saman sýrða rjómanum og majones og...

Hvað var málið?? (5 álit)

í Sápur fyrir 21 árum
Hæ allir!! Ég var að horfa á þáttinn í dag en mér fannst hann enda eitthvað skringilega!?! Hvað var málið með að Tad fyndi einhvern miða í boxi? Og ef að það var engin ástæða þá fannst mér að þátturinn ætti ekki að enda svona!!!!!!!!! kv.Hekna

Mynd (1 álit)

í Gamanþættir fyrir 21 árum
Hæ allir:) Mér vantar hérna smá hjálp;) Mig vantar einhverja flotta mynd af Friends( helst öllum) til að setja á desktopið mitt. Veit einhver um einhverja góða mynd sem ég gæti notað? Öll hjálp væri vel þegið, Hekna:)

Gæludýr (3 álit)

í The Sims fyrir 21 árum
Hér er ein spurning til þeirra sem eiga Sims Unleashed: Hvað heitir uppáhalds gæludýrið ykkar? ég er ekki að tala um tegund af gæludýri heldur hvað það heitir og hvaða tegund!! Minn uppáhalds heitir Marvin og er hundur:)

Hauskúpa (2 álit)

í The Sims fyrir 21 árum
Ég fór inn í leikinn minn(Sims) fyrir stuttu og ég fór inn í The Bachelor family þar sem einn kall og sæti hundurinn hans Kátur búa. En mér var litið á veginn og sá ég þá ekki bara hauskúpu á götunni, hún liggur bara á veginum, vill ekki deletast og glóir á nóttunni, já ég veit svoldið scary. Veit einhver hvað þetta er og af hverju þetta kom???? Ég á alla Sims leikina!! kv.Hekna

Hvað er besta áleggið á pizzuna? (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum

Elly að fara...... (3 álit)

í Sápur fyrir 21 árum
Mér finnst rosa leiðinlegt að Elly fari, hún var svo skemmtilegur karakter:) Fyrst þegar hún kom fannst mér Kendell leika Elly frekar illa, en undir lokin fannst mér hún leika þetta mjög vel:D Gangi þér vel í Svíþjóð, Elly!!

Mexíkóskur kjötréttur með tacosósu (1 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum
Þar sem að ég gjörsamlega elska mexíkóskan mat varð ég að setja eina inn á huga.is;) Fyrir 4: 600 g nautakjöt, meyrt 100 g gúrkur 100 g rjómi, sýrður 100 g jöklasalat 3 msk ólívuolía 1 msk pipar, svartur frá McCormick 4 stk tómatar 4 stk Tortilla hveitikökur, stórar 2 stk paprika 1 stk laukur, stór 1 stk tacósósa ostur kryddsalt, aromat frá McCormick Undirbúningur: Saxið niður laukin(gróft) og skerið paprikuna í ræmur. Aðferð: Skerið kjötið í ræmur og steikið það í mjög heitri olíu ásamt...

Hverjir eru á myndinni? (1 álit)

í Sápur fyrir 21 árum
Hæ allir: Hérna fyrir ofan leitarsíðurnar er mynd af Neighbours. Hverjir eru á henni? Lou og?

Ekkert spennandi:( (0 álit)

í Sápur fyrir 21 árum
Mér finnst Neighbours vera mjög góðir þættir en núna undanfarið hefur þetta allt verið mjög óspennandi:( Þegar ég byrjaði að horfa á Granna í Ramsay St. fannst mér þetta vera góðir þættir og alltaf eitthvað spennó í gangi en núna finnst mér þetta vera ekkert spennandi þættir. SAMT horfi ég á þá, ég mun ekki hætta að horfa á þessa þætti fyrr en það verður hætt að sýna þá á Stöð 2! Nema kannski að ég flytji til Ástralíu, hehe:)

Dagskráin (4 álit)

í Sápur fyrir 21 árum
Ég er ein af þessum sem að er í skóla þegar Neighbours eru sýndir kl.12:00. Þannig að ég horfi alltaf á þá kl.17:40! En ég var að lesa dagskrána í gær og þá kom fram að hætt verði að sýna Neighbours kl.17:40 í þarnæstu viku, þeir verða bara sýndir kl.12:00:( Og það verði bara þannig, framvegis verða Neigbours sýndir bara kl.12:00:( Og dagskráin náði ekki svo langt að ég gæti séð hvort að endursýningarnar á sunnudögum væri líka hætt:( Vona samt ekki, því að þá er engin von að ég gæti horft á...

Hvor er eldri? (4 álit)

í Sápur fyrir 21 árum
Ég er svoldið forvitin! Hver er eldri: Steph eða Flick? Ég veit að Shell er yngst!

Spænsk eggjakaka (2 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Eftirfarandi er uppskrift af spænskri eggjaköku sem er mjög góð:) 1 msk steinselja, ný, fínsöxuð 2 tsk. ólívuolía 1 tsk. salt 1 tsk. smjör 4 stk skinku sneiðar 4 stk beikon sneiðar 3 stk egg, létt hrærð 1 tsk.bergmynta, ný 2 stk. laukur 2 stk. kartöflur, stórar 1 stk. paprika 1/2 stk. dvergkúrbítur pipar, svartur, McCormick, piprið eftir smekk Sósa: 1 1/2 dl kjúklingasoð 2 msk. sveppir 2 msk. stöngulselja 2 tsk.smjör 1 tsk. sykur 1 tsk. salt 2 stk. tómatar 2 stk. hvítlauksgeiri i stk. laukur...

Hvernig..... (1 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hvar getur maður fengið Sims Online???????? ég er ekki að fatta neitt með þennan leik en sögurnar sem ég er búin að heyra frá þessum leik eru mjög góðar:) Hvar getur maður fengið þennan leik? Er hann kominn í búðir??

Hinn fullkomni Sims leikur:) (2 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hæ allir!!!! Hinn fullkomni Sims leikur væri eftirfarandi: Simsarnir geta farið í heimsókn til allra, frekar en að þeir myndu biðja þá um að koma í heimsókn. Það væri líka hægt að fara í heimsókn til Townie vinanna og skoða “eignina”:) Maður gæti “chattað” við vinina sína og sagt þeim allt sem maður vill! Maður gæti ráðið sjálfur í hvaða starfi maður er!! Annars finnst mér Sims vera frekar fullkominn leikur;) Hvað finnst ykkur “hugarar”?

Launin (10 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég fór að velta fyrir mér vegna þess að ég hef alltaf simsana mína í jobbum, hvað er hægt að komast mest upp í mikil laun með mörgum stöðuhækkunum???????

Erinsborough (4 álit)

í Sápur fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hæ allir! Fyrir þá sem ekki vita er hægt að fara inn á erinborough.com, þar er allt um leikarana, karakteranna, fullt af spoilerum og fleira! Mæli með þessari síðu. kv.Hekna

Grill Gúff!! (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hæ hæ! Hérna er rosalega gott Grill gúff sem að er mjög gott á grillið:) Hér er uppskriftin: 100 g rifið súkkulaði 3 stk. kókosbollur 500 g ávaxtasalat t.d. jarðarber, kiwi, bláber, vínber, perur, bananar og epli. Ávextirnir skornir í bita og settir í álbakka. Súkkulaðinu sáldrað yfir. Klessið kókosbollunum yfir. Grillið í u.þ.b. 10 mín. við lágan hita. P.s Þið ráðið hvort þið grillið í ofni eða á sjálfu grillinu. Þetta er geðveikt gott. ég hvet ykkur í að búa svona til einhverntímann!

Smá vandamál! (2 álit)

í The Sims fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hæ allir! Það er smá vandamál í gangi hjá mér í Sims og það er að alltaf þegar ég klikka á eitthvað ( segjum að simsinn minn sé að fara að borða og ég klikka á ísskápinn) hverfur alltaf músin þannig að ég get ekki gefið honum að borða, það tekur alltaf sinn tíma að hitta á réttann stað! Þetta er geðveikt fúlt, en ég veit ekki hvernig á að laga þetta, veit það einhver? Þetta var að byrja fyrir stuttu síðan. kveðja Hekna

Hverjir eru búnir að gá...... (13 álit)

í Gamanþættir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hverjir eru búnir að gá inni á www.stomps.org, hvaða persónu i Friends þeir líkjast mest? Ég er mest lík Ross:( Ég var að vonast til að vera mest lík Phoebe, uppáhalds persónunni minni:)

Joe Scully hristist alltaf svo mikið (10 álit)

í Sápur fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hafið þið tekið eftir hvað Joe Scully hristist alltaf svo mikið? Alltaf þegar hann er að tala hristist hann allur! Skrýtið:)

Aldursmunur á Tad og Elly (1 álit)

í Sápur fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég fór að spá í einu: Tad er alltaf að segja að það sé svo mikill aldursmunur á milli síns og Elly. Er það? Er eitthvað mikill aldursmunur á þeim? Er ekki Elly 15 ára og Tad 18 eða 19 ára? Hver getur svarað þessu?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok