Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Einar Scheving (2 álit)

í Jazz og blús fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Ég reyndi að senda inn mynd af plötunni Cycles með trommaranum Einari Scheving en hún var í rugli þannig að henni var hafnað. Ég fann ekki aðra mynd af henni svo að ég ákvað að vekja athygli á henni hér sem og sjá hvernig þeir sem hefðu heyrt fyndist hún. Platan kom út að mig minnir árið 2007. Hún var að minsta kosti valin jazz plata ársins það ár. Þeir sem leika á þessari plötu eru Eyþór Gunnarsson á píanó, Óskar Gupjónsson á Tenór Sax og Skúli Sverrisson á bassa. Einar spilar svo sjálfur á...

Óska eftir... (0 álit)

í Apple fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Ég ætlaði að athuga (á huga) hvort einhver væri svo vænn að selja mér svona veski utan um MacBook tölvu (s.s. 13'') á slikk. Þegar ég tala um veski þá er ég að tala um svona til að verja hana þegar maður er eð hana í töskunni.

Coffin Hard-case til sölu (1 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Er hér með eina coffin gítar-hardcase til sölu. Hún lítur út frekar vel út. Mynd: http://www.hugi.is/hljodfaeri/images.php?page=view&contentId=3793746 Verðhugmynd 10.000 kall. Velfarinn og vönduð taska sem lítur vel út.

Til Sölu.... (7 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Komiði sælir sam-Hugarar. Fyrir þá rokkara eða aðra gítarleikara sem vilja vera grúvaðir með gítarinn í töskunni takið eftir! Ég er hér með sölu grjót-harða gítartösku. Frábær taska sem hægt er að treysta fyrir gítarnum þínum. Ég veit fyiri víst að Les Paul-style gítara passa í hana. Ég held að flestar gítartegundir passi í hana, en ég er ekki með það alveg á hreinu Það sem gerir þessa tösku svona sérstaka er að hún lítur út eins og líkkista. Hún er því kúl fyrir alla, konur og kalla. Það...

Slappa á gítar (11 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Já mig langar soldið að læra að slappa á gítar. Ég hef verið að reyna jútúpa þetta eitthvað en finn ekkert gott. Mestmegnis gaura sem eru að monta sig að því að geta þetta og vilja ekki kenna þetta því að ef allir kunna þetta þá er það ekkert kúl. Þannig að spurningin er getur eitthver bent mér á myndband eða eitthvað sem getur kennt mér að slappa á gítarinn minn. Takk fyri

Line 6 Spider II (6 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Góðan daginn! Þeir metal-hausar sem vilja geta jammað rétt fyiri svefninn takið eftir. Ég er með eitt stykki Line 6 Spider II 15w náttborðs-magnara. Fínn magnari til þess að hafa heima fyrir þá sem vilja fá fína bjögun án þess að þurfa petala eða nokkurn skapaðan hlut. Hann er vel farinn. Það eru nokkrir über-osom límiðar á honum en það truflar ekkert sándið. Sniðugur magnari fyrir unga sem aldna sem eru ekki að spila jazz. Ég held að ég eigi meira að segja kassann utan um hann (don´t ask...

Fender óskast (7 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Góðan daginn! Ég hef soldið verið að gæla við það að fá mér nýjann rafgítar. Það sem mig langar helst í er Fender Strat með maple háls og ekkert humbucker vesen í bridge. Helst USA. Þannig að ég ætla að athuga hvort að einhver lumi á einu stykki Ég er tilbúin að borga svona 80.000 kall fyrir hann. Ef þið eruð samt með eitthvað flott sem uppfyllir ekki ofangreindar kröfur, þá endilega skjóta. Í alversta falli segi ég kursteisilega, nei takk. Svo ef að þið eruð með Tele, jaguar eða jazzmaster...

Að pikka Pikköppa (8 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Já, daginn! Ég er með eina Epiphone Les Paul 100. Skammast mín að segja það en þetta er með ódýrustu ef ekki ódýrasta Epiphone Lessan. En þannig er að þetta er ágætu gítar þannig séð, Þægilegt að spila á hann og sonna. Eina sem ég hef út á að setja eru stilliskrúfurnar og pikköpparnir. Ég hef ekki hugmynd um hvaða pikköppa ég á að kaupa. Sándið sem ég er að leita af er svona 60´s blues rokk, gamaldags. Ég er ekki að fara að spila eitthvað insane overdrive en þeir verða að ráða við eitthvað....

Gítarinn minn hættur að halda stilllingu! (og lampamagnara spurning) (14 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Gítarinn minn sem er af gerðinni Epiphone Les Paul heldur stillingu svo stutt. Hann hefur aldrei hagað sér svona áður. Er eitthvað sem ég get gert til að laga þetta? Svo langar mig að spyrja, því að ég nenni ekki að gera sér kork fyrir þetta, en hvað þarf maður stóran (mörg wött) lampamagnara til þess að spil með hljómsveit, þá er ég ekki að tala um á giggum heldur á æfingum.

Radioactive series/list (8 álit)

í Gullöldin fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ég veit ekki afhverju en þetta radioactive series eða list skaut niður í kollinn á mér í dag. En ég heyrði eitthvern gæja í útvarpinu, Rás 2 minnir mig, vera að tala um og spila eitthvað radioactive dót, list eða series fyrir hálfu r sum. Ég er búinn að reyna að gúgla þetta en finn ekkert um þetta. Mér fannst þetta frekar skemmtilegt, þetta var einhver sýra minnir mig. En ég fékk bara brennandi áhuga á þessu í dag og mig langar til að kynna mér þetta Þannig að ef einhver hefur heyrt eitthvað...

LESIST!!!!! (11 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ég er að gera efnafræði skýrslu og þarf að setja efnajöfnur í skýrlsuna. Ég kann samt ekki að gera svona litla tölustafi fyrir neðan. Þannig að ég var að pæla hvort að einhver kynni það? Bætt við 25. september 2008 - 17:52 Gleymdi að nefna að ég er að reyna að gera svona litla tölustafi fyrir neðan í word.

Bassa trommu mic (15 álit)

í Hljóðvinnsla fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Já ég var að velta fyrir mér hvað einhver er tilbúinn að selja mér bassatrommu mic á mikið? Er ekkert tryggt að ég kemst upp með að eyða miklu í svoleiðis. En ekkert eitthvað ömurlegt drasl!

Sikk (15 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Þetta er frétt af Roger Took sem var virtur og frægur breskur sagnfræðingur, rithöfundur, safnstjóri frægra listasafna á borð við Barbican og stofnandi Artangel listasmiðjunnar. En upp hefur komist að hann er grófur barnaníðingur og sadisti eins og segir í frétinni. http://visir.is/article/20080912/FRETTIR02/798680273 Vara ykkur samt við þetta er frekar sjokkerandi lesining. Langaði bara að benda á þetta. Þess má til gamans geta að ég var að pæla í að pósta þessum börnunum okkar, en mér...

MacBook (20 álit)

í Hljóðvinnsla fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Setti þetta inn á Mac áhugamálið, en enginn hefur gefið mér nein svör þar, þannig að ég ákvað að skella þessu hér: Ég er að pæla í að kaupa mér MacBook. Ég mun koma til með að nota hana í hljóðvinnslu. Þannig að spurningin er hvort að hún séi ekki góð í hljóðvinnslu og standi mörgum , ef ekki flestum PC tölvum framar í þeim efnum? Einnig spyr ég hvort að hún geti keyrt flest hljóðvinnsluforrit svo að vel gangi? Eða á ég að skella mér á Pró?

MacBook (1 álit)

í Apple fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég er að pæla í að kaupa mér MacBook. Ég mun koma til með að nota hana í hljóðvinnslu. Þannig að spurningin er hvort að hún séi ekki góð í hljóðvinnslu og standi mörgum PC tölvum framar í þeim efnum.

Flamenco (1 álit)

í Klassík fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég er gítarleikari sem langar að fara að prófa að spila Flamenco tónlist. Ég er ekki fróður um hana og ég veit ekki hvar ég á að byrja. Þannig að spurningin er, hvort einhver geti bent mér á góð verk til að byrja á að spila. Fyrir fram þakkir, DaCapo

Til sölu: Scott ferða DVD spilari með 10 tommu / 25,4 cm LCD skjár (0 álit)

í Græjur fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég er að selja tiltörulega nýjan Scott ferða DVD spilari með 10 tommu / 25,4 cm LCD skjár. http://www.ri.is/index.php?option=com_ahsshop&vara=1343&Itemid=0&sP=0 Ég set hann á 25 þús kall. Sendið PM fyrir nánari contact upplýsingar.

TonePort, Mixer (12 álit)

í Hljóðvinnsla fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég var að pæla hvort að einhver vissi hvort það sé hægt að tengja mixer við TonePort græju, jafnvel hvernig það fer fram. Bætt við 10. ágúst 2008 - 18:49 Já gleymdi að þetta er TonePort UX2

Sachs Madass (5 álit)

í Mótorhjól fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég legg hér spurnignu fram fyrir hönd félaga míns. En honum leikur forvitni á að vita hvar hægt er að fjárfesta í Sachs Madass hjóli. Takk fyrir.

Megas (1 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég var að pæla hvort að einhver vissi hvær nýja platan með Megasi kemur út?

Suð? (9 álit)

í Hljóðvinnsla fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég er að taka lag upp á Line 6 toneport með shure sm58 mic, nota reyndar Audacity. Þegar ég hækka örlítið á rásinni með bongotrommunni þá heyrist alltaf eitthvað suð. Hefur einhver einhverja hugmynd um hvað getur verið að?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok