Bara trommurnar og standarnir sem fylgja því kosta svona 80.000 held ég og svo eru cymbalar svo rosalega mismunandi í verði. Getur reynt að fá þér notaða cymbala á svona 5000 kall stk eða ágæta nýja á svona 10-20.000 stk en svo er líka hægt að kaupa sér nýja geggjaða cymbala á 40.000 kall stk.
Empty Spaces er samt alvöru. Ég prufaði að gera þetta sjálfur í tölvunni minni og það var eins og á þessari síðu og maður heyrir textann greinilega. Ég prufaði líka að snúa Stairway við og það er voða svipað og á þessari síðu en manni mundi aldrei detta í hug hvað hann er að segja nema af því að maður hefur textann fyrir framan sig.
Þú getur ekki horft á þá á neinni síðu, pirrandi fólk sem spyr alltaf um síður sem er hægt að horfa á þættina á. Það eru aftur á móti til síður og forrit þar sem þú getur downloadað þáttunum. (einn lost þáttur er 350 mb oftast)
SA eru bestir ef litið er yfir siðustu ár en SR vann að vísu núna síðast. Það hafa verið eitthvað um 15 íslandsmeistaramót í hokkíi og SA hafa unnið 12 held ég og SR 3 (Gæti verið eitthvað vitlaust) Aftur á móti hefur Björninn aldrei unnið titlinn og aðeins 1 sinni komist í úrslit þannig að ekki hlusta á þessa fávita hér fyrir ofan.
K750i kostar líka 23000 í fríhöfninni. http://dutyfree.is/menu/taeki/?ItemDepCode=T%c3%86&ItemGrCode=S%c3%8dMAR+GSM&Redirect=false&Path=/resources/Controls/51.ascx
Þú getur verið safnari sama hverju þú safnar, gæti þess vegna safnað sandkornum og kallað þig safnara. Þannig að hann er safnari, hann safnar bara mp3 en ekki geisladiskum og plötum.
Það er ennþá hægt að nota gamla góða dc. Ég nota DCf núna en veit ekki hvar er hægt að dla því. Fara svo bara á þessa síðu til að finna hubba. http://www.hublist.org/?PHPSESSID=3770a134edbe5bac031a7ab597bd9936&p=search&search=&country=IS&x=20&y=3
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..