Ég hef orðið var við nýjan MSN vírus en hann ber nafnið RateMyNuts.net Virus. Hann virkar þannig að maður fær senda slóð frá sýktum aðilum á MSN. Ef smellt er á slóðina sýkist tölva viðkomandi og viðkomandi byrjar að dreifa slóðinni sem bendir á vírusinn.

Slóðin lítur einhvern veginn svona út:

http://wwv69.ratemynuts.net/view_nuts.php?msn=mitt@email.is

Óvíst er hvað vírusinn gerir í raun og veru en ef skoðað er view_nuts.php skjalið, þá er það einhver compilaður kóði sem keyrir og gerir eitthvað við vél viðkomandi.

Ég hef því miður ekki enn fundið fix fyrir þennan vírus en HAFIÐ VARANN Á!

Enn og aftur væri vel þegið að ef þið rekist á eitthvað svipað þessu, að þið senduð mér einkaskilaboð með upplýsingum og hugsanlega hvernig hægt sé að losa sig við þetta. Þá myndi ég skella því hingað inn svo að notendur /Netið geti verið við öllu búnir.
Gaui