Ég er sjálfur mac notandi og ég er búinn að prófa að gúgla þetta hægri vinstri og allir virðast vera með einhver svör en þau eru flest öll bullshit.

Þannig að er einhver snillingur hér sem kann að komast framhjá þessu ?

Fyrir þá sem ekki vita þá er megavideo.com síða sem maður getur horft á nánast hvaða þætti eða bíómyndir sem er live-stream í HD gæðum en maður getur bara horft í 72 minútur áður en maður þarf að bíða í rúmlega klst á milli.

Til þess að finna myndir á síðunni er best að fara á www.surfthechannel.com og þar eru yfirleitt linkar á megavideo.

Þannig endilega látið mig líka vita ef þið vitið kannski um aðrar síður sem hægt að er að horfa á þætti án einhverra fjandans tímatakmarka.