Ég er með nettenginu hjá Vodafone og er búinn að vera með hana í 1-2 ár og góð tenging og allt það nema núna síðustu 2 mánuði hefur tengingin versnað.. og virðist sem þetta verði bara verra og verra… það tekur mig langan tíma að loada bæði íslenskum og erlendum síðum, ég lagga og missi alltaf tengingu þegar ég spila netleiki.
Ég hef haft samband við vodafone nokkrum sinnum en alltaf sama sagan, þeir vita ekkert í sinn haus eins og venjulega og vilja að ég aftengi heimasímann í sólarhring sem ég skil ekki hvað það kemur tengingunni við… ég flutti í blokk fyrir 2 og hálfum mánuði síðan og var netið mjög fínt fyrsta hálfan mánuðinn..
Veit einhver hvað ég get gert?