Ég er í svolitlum vandræðum. Málið er að ég veit ekki mjög mikið um tölvur og ég var að pæla í að fá mér ADSL tengingu. Þá fór ég að leita hvaða tilboð væru í gangi og svoleiðis. Ég hringi tildæmis upp í Íslandssíma og spurðu þau um hvernig tilboð væri í gangi og svoleiðis og gaurinn í símanum sagði einhvað já, við erum með bla bla tenginu sem er svona hröð og með svona miklu megabæta einhvað og ég skildi voða lítið um hvað hann var að tala. Þannig að ég var að pæla hvort að einhver gæti hjálpað mér sambandi við hjá hverjum er best/ódýrast að fá ADSL tengingu hjá.