Ég er með email hjá visi.is en þegar ég skrái mig út er ég ekkert skráð út. Semsagt þegar ég ætla að kíkja aftur á póstinn þá fer ég beint inn á hann, þarf ekki að skrá mig inn. Mér lýst ekkert á þetta, þarna eru mikilvægar upplýsingar sem ég vil alls ekki að aðrir komist í.
Kannast einhver af ykkur við þetta?
Ætli þetta sé villa í kerfinu hjá þeim eða hvað…
Og eitt enn, vitið þið við hvern ég á að hafa samband til að laga þetta? Ég finn það nefnilega ekki á visi.is.

Með fyrirfram þökk
NoAngel

Bætt við 1. mars 2008 - 10:09
Ok, ég fann reyndar við hvern ég á að hafa samband en ég er að pæla hvort það sé ekki hægt að reyna að gera eitthvað annað áður…
Ég finn til, þess vegna er ég