Ég þarfnast hjálpar með eBay. Þegar maður er að skrá sig þarf að skrifa kortanúmerið og annað númer á kortinu. Það stendur að bæði kredit- og debetkort virka, en þegar ég reyni að skrifa debetkortanúmerið þarna kemur alltaf upp að þetta sé ekki rétt númer. Ég er ekki einusinni viss um að ég sé að skrifa rétta númerið, búin að prófa bæði númerið á kortinu og á kortareikningum en það virkar hvorugt. Maður þarf reyndar líka að skrifa eitthvað þriggja stafa númer sem á að vera á kortinu, en ég finn ekkert númer sem gæti átt að vera þar.

Hjálp?