Sæl-ar/ir.
Ég er á tengingu bróður minns og vantar að opna port.
Ég vill ekki gera það án hans samþykkis og þar sem að ég eyðilegg vanalega tölvunar þá er ég ekki beint traustvekjandi til að tala við um eitthvað sem maður hefur ekki hugmynd um.

Svo ég var að vonast til að fá svona kosti og galla um að opna port. T.d. svar við spurningu “til hvers að opna port?” og “hvaða gagn það geririr það?” og “getur einhver komist þá inná tölvuna?” og svoleiðis hluti.

Vantar helst trausvekjandi punkta en samt sem áður kosti OG galla og allan sannleikann.

Það væri frábært ef einhver gæti sett eitthvað slíkt saman fyrir mig.

Kveðja, H.P.