Sko alveg síðan ég fékk mér laptop þá hef ég ekki getað tengst þráðlausa netinu hérna heima. Systir mín og mamma hafa verið að lenda í sama vandamáli nema að þær komast stundum inn, mín kemst aldrei. Það er ekkert vandamál að tengjast með mína borðtölvu og heimilistölvuna og sömuleiðis að tengjast þráðlausa netinu í skólanum með fartölvunni. Við erum búin að tala oft við símann um þetta og það eru búnir að koma menn til þess að lega þetta en það hefur aldrei gengið… Hefur einhver hér hugmynd hvað getur verið í gangi?
Brostu framan i heiminn og hann lemur thig til baka i andlitid…