Hjello…ég var að vellta því fyrir mér hvaða skráarskiptaforrit þið væruð að nota. Ég hef verið að nota LimeWire í smá tíma en ég er ekki alveg að kunna við hann. En áður en ég sæki mér Kazaa með fullt af einhverju aukadóti (semsagt þessa fríu auglýsingaútgáfu af Kazaa) að þá þætti mér gaman að heyra hvaða forrit þið eruð að nota og hvernig þau eru að reynast ykkur.

Ég ætla rétt að vona að þessi þráður verði ekki tekinn út þar sem að ekkert er ólöglegt við skrárskiptaforrit á Íslandi og er því ekki hægt að setja út á það sem spurt er um í þessum korki.

Kveðja,
FenrirGreyback