Ástæðan til þess að netið frýs er trúlega að nattið í routernum springur. Torrent er oft með gríðarlega margar tengingar. Og ef þú ert með mörg download í gangi í einu + að share fullt af efni þá er alveg opið að þetta sé meira en routerinn ráði við. Gætir reynt að takmarka fjölda tenginga sem tölvan notar per torrent til að hlífa routernum.
Við endurræsingu á router hreinsast þessi nat tafla og þú getur byrjað upp á nýtt. Einnig er hægt í mörgum routerum að stytta líftímann á natti þannig að dauðar tengingar séu ekki að taka upp minni.