Fyrir svona einu ári þá notaði ég síðu til að ná í cd key-a á netinu. Síðan hét og heitir enn www.serials .ws Allt virkaði þá fínt og allt gott með það.

En núna í dag þá vantaði mér einn cd key í skrifaðan leik sem ég ætlaði bara að prófa og þegar ég opnaði eina síðu þá þurfti ég að horfa upp á tölvuna mína troðfyllast af vírusum. Ég hafði að vísu þurft að disabla firewall-inn stuttu áður og gleymdi að kveikja aftur á honum þannig að það var ansi greið leið í tölvuna mína.

Já tilgangur þessa korks var svona meira á að benda ykkur á að halda ykkur frá þessari síðu þegar þið eruð kannski að leita með leitavélum af cd-keyum.

Svo gæti vel verið að einhverjir eiga eftir að kalla mig n00b að hafa farið inná þessa síðu. Það gæti líka bara vel verið að það sé satt. :S