Ég er búinn að vera með þráðlaust net í um það bil 3 - 4 vikur. Frábært og allt það, en það virkar hinsvegar ekki nema bara þegar ég re-starta routernum, og þá get ég verið online í sirka hálftíma, og þá þarf ég að fara að restarta aftur. Ég er ennþá tengdur í tölvunni, og kemst inn á routerinn þegar þetta gerist. En ekki netið. Ég er búinn að fá nýjann router einusinni, og þá virkaði þetta fínt fyrstu vikuna eða svo, og svo fór allt í sama veg aftur. Dett sumsé endalaust út, þvílíkt bögg!

Ef einhver veit hvað þetta gæti verið, eða hefur hugmynd um það, endilega segiði mér þá hvað ég get gert.

og já, svona btw. ég er ss. með Adsl 6 mbit hjá OgVodafone. Þetta sem þeir kalla ótakmarkað.
ég er búinn að hringja í þá margoft og fara til þeirra, er alvarlega að spá í að fara eitthvert annað, þar sem þjónustan er algjör hörmung !