Ég rakst á svolítið athyglisvert um daginn á vef 1x2.is.
svo virtist sem einhverjir hakkarar hefðu brotist inn á vefinn og skilið eftir skilaboð þar. reyndar á : https://www.1x2.is/totoscripts/

fuck USA Government
fuck PoizonBOx
contact:sysadmcn@yahoo.com.cn


Eftir að hafa athugað málið lýtur út fyrir að þetta hafa verið stærra en sýnist í fyrstu. Svo virðist sem þeir/hann hafi nýtt sér holu í Microsoft FTP Service (Version 4.0 & 5.0) og náð að setja inn sýnar eigin skrár :

default.htm 289.bytes
default.asp 289.bytes
index.asp 289.bytes
index.html 289.bytes

Það sem kom einnig í ljós að þetta einskorðast ekki eingöngu við 1x2.is. Eftir snögga leit hef ég fundið um 20 ftp servera sem þar sem þessum skrám hefur verið skipt út.
Dagsetningin er allt frá byrjun til enda mai þessum skrám, þennig að svolítill tími er síðan þetta hefur átt sér stað.
Ég hvet þannig alla til að athuga málið hjá sér og ath hvort ekki sé allt í lagi.