Ég er í vandræðum ég er búinn að reyna allt sem mér dettur í hug en mér tekst ekki að eyða út leiðindar addware sem rænir internet browserinum mínum, eyðir history og upphafstillir síðuna á einhverja vafasama síðu. Af og til poppa up aðrar síður. Ég hef prófað adaware og spybot og þau virðast alltaf finna sömu fælanna og eyða þeim en virðast aldrei ná að finna og eyða kjarnanum sem er að búa til þessa fæla. Þetta er addware sem kallast coolwebsearch og er víst mjög erfitt að eyða þessu út að mér skilst. Hefur einhver lent í því sama og getur e.t.v hjálpað mér?